Leiðbeiningar

Útgefandi hljómplötu skal leggja fram hljómplötur og myndbönd til stuðnings tillögu um tilnefningu. Útgefandi hljómplötu velur þann undirflokk sem hann telur rétt að tilnefna hljómplötuna í. Dómnefnd er heimilt að leggja til breytingu á flokkun hljómplötu en þarf samþykki útgefanda fyrir slíkri breytingu.
Dómnefnd er óheimilt að tilnefna fleiri hljómplötur, verk eða flytjendur en reglur segja til um. Dómnefnd er óheimilt að tilnefna hljómplötur, plötuumslög eða myndbönd sem ekki voru lögð fram af útgefanda.

Skilgreiningar:

Tímabilið:
ÍTV miðar við almanaksárið, þeas verk sem koma út frá 1.jan. til 31.des ár hvert.

Hljómplata:
Breiðskífa íslensks flytjanda í hefðbundnum skilningi þess orðs

Hljómplata ársins:

Gjaldgengar eru þær hljómplötur íslenskra flytjenda sem lagðar eru fram til dómnefndar og voru frumútgefnar á tímabilinu. Gjaldgengi hljómplötu er óháð því hvort hún innihaldi frumflutning verka eða áður útgefin verk en skilyrði er að amk 80% hljóðritanna á hljómplötunni hafi ekki verið gefin út áður, á öðru tímabili. Aðalflytjandi hljómplötunnar skal veita verðlaunum viðtöku.

Verk:
Stakt tónverk, lag eða lag og texti eftir íslenska höfunda.

Lag/tónverk ársins:
Gjaldgeng eru þau verk eftir íslenska höfunda sem frumflutt/eða frumútgefin voru á Íslandi á tímabilinu og lögð eru fram til dómnefndar af útgefanda. Dómnefnd er óheimilt að tilnefna önnur verk en þau sem útgefandi bendir sérstaklega á. Útgefanda er í sjálfs vald sett hvort hann kýs að miða við frumflutning eða frumútgáfu verks en óheimilt er að leggja verk fram aftur ef það hefur áður verið lagt fram á öðru undangengnu tímabili. Komi upp sú staða að verk hafi verið frumútgefið á einu ári en notið vinsælda eða vakið athygli á tímabilinu sem ÍTV miðar við hverju sinni er heimilt að leggja það fram sem verk ársins. Skal dómnefnd þá túlka aðstæður þröngt, meta gjaldgengi verksins og rökstyðja niðurstöðu komi til tilnefningar, þó gildir sú takmörkun sem áður er getið um framlögn verks á öðru undangengnu tímabili. Tilnefna skal verk en höfundur/ar skal veita verðlaunum viðtöku.

Flytjandi:
Íslensk hljómsveit eða einstaklingur sem flytur tónlist
Aðalflytjandi:
Sá hópur eða einstaklingur sem hljómplatan eða lagið er kennt við.
Dómnefnd:

Sá hópur fólks sem framkvæmdastjórn ÍTV velur til dómnefndarstarfa hverju sinni.
Lagahöfundur ársins:
Gjaldgengir eru allir íslenskir höfundar sem vöktu athygli á árinu. Dómnefnd er frjálst að tilnefna lagahöfund ársins óháð því hvort þeir hafi verið tilnefndir sérstaklega. Tilnefna skal fyrir áberandi framlag við ákveðið verkefni, svo sem fyrir lög á ákveðinni hljómplötu eða í söngleik eða þh.
Textahöfundur ársin:
Gjaldgengir eru allir íslenski textahöfundar sem vöktu athygli á árinu. Dómnefnd er frjálst að tilnefna textahöfund óháð því hvort þeir hafi verið tilnefndir sérstaklega. Tilnefna skal fyrir áberandi framlag við ákveðið verkefni, svo sem fyrir texta á ákveðinni hljómplötu eða í söngleik eða þh.
Flytjandi ársins:
Gjaldgengir eru allir íslenskir flytjendur sem vöktu athygli á tímabilinu, óháð útgáfu. Tekið skal sérstakt tillit til starfsemi flytjanda á sviði lifandi flutnings. Dómnefnd er frjálst að tilnefna flytjendur óháð því hvort nöfn þeirra hafi sérstaklega verið lögð fram. Flytjandi skal veita verðlaunum viðtöku.
Bjartasta vonin:
Gjaldgengir eru allir íslenskir "nýliðar" sem vöktu athygli á tímabilinu, óháð útgáfu. Dómnefnd er frjálst að tilnefna aðila óháð því hvort nöfn þeirra hafi sérstaklega verið lögð fram. Skilgreining á nýliða skal vera í höndum dómnefndar sem skal þó geta rökstutt val sitt með sterkum hætti og ber dómnefnd að túlka hugtakið þröngt. Heimilt er að tilnefna hvort sem er flytjanda eða höfund úr hvaða tónlistargeira sem er. Óheimilt er að tilnefna aðila í þennan flokk sem áður hefur hlotið tilnefningu til ÍTV, gefið hefur út hljómplötu sem aðalflytjandi eða vakið hefur verulega athygli á einhverju tímabili sem er undangengið tímabili ÍTV hverju sinni. Tilnefndur aðili skal veita verðlaunum viðtöku.
Söngvari/Söngkona ársins:

Gjaldgengir eru allir íslenskir söngvarar eða söngkonur sem vöktu athygli á hljómplötu á tímabilinu. Dómnefnd er frjálst að tilnefna flytjendur óháð því hvort nöfn þeirra hafi sérstaklega verið lögð fram. Ekki er skilyrði að viðkomandi söngvari eða söngkona hafi verið aðalflytjandi eða hluti af aðalflytjanda á hljómplötu. Söngvari/söngkona skal veita verðlaunum viðtöku.
Plötuumslag ársins:
Gjaldgengar eru þær hljómplötur íslenskra flytjenda sem lagðar eru fram til dómnefndar og voru gefnar út eða endurútgefnar með nýju plötuumslagi á tímabilinu. Hönnuður skal veita verðlaunum viðtöku.
Myndband ársins:

Gjaldgeng eru þau myndbönd við verk íslenskra flytjenda sem lögð eru fram til dómnefndar og voru frumsýnd á tímabilinu, óháð upphaflegu útgáfuári tónlistarinnar. Leikstjóri skal veita verðlaunum viðtöku. Í öllum tilfellum er dómnefnd treyst til að hafa mat á gæðum þess sem lagt er fram og er í sjálfs vald sett hvort hún tekur mið af vinsældum eða öðrum slíkum þáttum. Faglegt mat skal þó ráða för.
Kvikmyndatónlist ársins:
Gjaldgengar eru þær kvikmyndir og/eða sjónvarpsþættir sem skarta frumsaminni tónlist (score).