Íslensku tónlistarverðlaunin voru veitt í fyrsta sinn árið 1993. Verðlaunin hafa verið í stöðugri þróun síðan en það voru félagsmenn úr rokkdeild FÍH sem stóðu að fyrstu hátíðinni, tilnefnt var í fjórtán flokkum og hlaut hljómsveitin Todmobile flest verðlaun. Fyrsta árið voru veitt verðlaun í flokki popp- og rokktónlistar, ári síðar bættist jazz við og árið 1995 voru fyrst veitt verðlaun í flokki sígildrar og samtímatónlistar.
Samtónn hefur verið ábyrgðaraðili Íslensku tónlistarverðlaunanna frá árinu 2002. Samtónn skipar þriggja manna stjórn verðlaunanna þmt framkvæmdastjóra ( nýtt fyrirkomulag 2007). Framkvæmdastjóri Íslensku tónlistarverðlaunanna á árunum 2001- 2004 var Einar Bárðarsson og frá 2005 - 2006 Berglind María Tómasdóttir. Núverandi framkvæmdastjóri er Pétur Grétarsson, en aðrir í stjórn eru Eiður Arnarson og Þorgeir Tryggvason, sem er formaður stjórnar.
Sjónvarpað hefur verið frá verðlaunaafhendingunni undanfarin ár og hefur áhorf mælst afar vel. Afhending Íslensku tónlistarverðlaunanna 2005 var t.a.m. 8. vinsælasta sjónvarpsefnið í íslensku sjónvarpi í janúarmánuði 2006 samkvæmt skoðanakönnun Gallups. Síðan hefur útsending í sjónvarpi mælst með um eða yfir 50%.