Hljómplötur:  

Agnar Már Magnússon: Láð. Önnur tríóskífa Agnars Más, sem að þessu sinni kveðst á við þjóðararfinn á innhverfum djassnótum. Lögin eru ýmist frumsamin eða unnin uppúr gömlum stemmum og sálmum.

Einar Scheving: Cycles. Fyrsta skífa trommarans unga. Lögin tíu mynda sterka heild og mætti kalla svítu; eru alþjóðleg í eðli sínu en bera þó sterkt norrænt yfirbragð og ríma vel við hljóðfæraleikarana sem flytja.

Sigurður Flosason: Bláir skuggar.
Saxafónleikarinn þrautreyndi glímir hér við blúsinn í ólíkum myndum, bæði innan og utan hefðbundins blúsramma. Með honum leika nokkrir reyndustu djassleikurum Íslands,    

Flytjendur:

Bonsom. Djassrokkuð hljómsveit ungra manna, sem búa yfir mikilli reynslu, og tekst að varpa pönkuðum frjálsdjassblæ á tónlist sína.  

Sigurður Flosason. Afkastamesti djasslistamaður þjóðarinnar sem aldrei kastar höndum til nokkurs verks. Hefur gefið út enn eina snilldardjassskífu á árinu og kynnt aðra sem er á leiðinni.  

Stórsveit Samúels J. Samúelssonar. Ótrúlegt afrek hjá básúnuleikaranum unga að stofna fönkaða djassstórsveit með kornungum mönnum, gefa út athyglisverða skífu með sveitinni og halda tónleikan um land allt.


Tónverk: 

Agnar Már Magnússon: Daboli. Seiðandi impressjónísk tónsmíð með alþjóðlegu sem íslensku ívafi.  

Björn Thoroddsen: Ice West Einföld en grípandi laglína sem vísar til marvíslegra hrynrænna áhrifa.  

Eyjólfur Þorleifsson: Bonsom Kraftmikið lag með klassísku sem latnesku ívafi og rokkaðri undiröldu.


Dómnefnd - Jazz
Tilnefningar síðasta árs