Límmiðarnir eru afhentir samkvæmt samkomulagi við FHF.
Leiðbeiningar um notkun límmiðanna:
Einungis er leyfilegt að merkja plötu með límmiða ef
*platan er tilnefnd sem hljómplata ársins í einhverjum flokkanna.
*aðalflytjandi á plötunni er tilnefndur sem flytjandi ársins, bjartasta vonin, söngvari ársins eða söngkona ársins.
*platan inniheldur verk/lag sem tilnefnt er sem verk/lag ársins (gildir þó ekki um safnplötur).
Ekki er leyfilegt að merkja plötu ef
*platan er einungis tilnefnd fyrir umslag ársins.
*eina tilnefning plötunnar er myndband ársins við lag á plötunni (nema myndbandið sé bókstaflega að finna á plötunni - DVD eða CD-ROM).
*platan innihaldi, meðal annarra flytjenda, aðila sem er tilnefndur sem flytjandi ársins, bjartasta vonin, söngvari ársins eða söngkona ársins (safnplata eða plata margra flytjenda).